Vortónleikar 14. maí Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Guðni Gíslason   
Föstudagur, 27. apríl 2012 13:49

vortnleikar 2012 veggspjald skjar2
Vortónleikar Óperukórs Hafnarfjarðar verða haldnir í Hafnarborg mánudaginn 14. maí kl. 20.

Kórinn undirbýr nú tónleikaferð til Verona á Ítalíu í júlí og er mikill hugur í kórfélögum og stjórnandanum, Elínu Ósk Óskarsdóttur sem lofar góðum og skemmtilegum tónleikum.

Flutt verða íslensk lög, lög úr óperettum og fleiri lög.

 

Efnisskrá:

Hafnarfjörður - Þjóðsöngur Hafnfirðinga

Krummavísa - íslenskt þjóðlag og þjóðvísa

Gloria Tibi - íslenskt þjóðlag og þjóðvísa

Við gengum tvö - Lag: Friðrik Jónsson Ljóð: Valdimar Hólm Hallstað

Ímynd þín -

Litanei -

Heilræðavísa -

Í heitri þökk -

Land míns föður -

— Hlé

Brostu vina - söngur úr óperettunni Kátu ekkjunni

Viljusöngur - söngur úr Kátu ekkjunni

Vínarblóð Strauss -

Vín, borg minna drauma -

Dúett úr óperettunni Sígaunabaróninum

Húrrakórinn - úr Sígaunabaróninum

Veisluborð - söngur úr óperettunni Leðurblökunni

Finale - söngur úr Leðurblökunni

Verð miða er 2.000 kr. og verða seldir við innganginn og hjá kórfélögum. Hægt er að panta miða með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 10. maí 2012 10:28
 
Alda nýr formaður Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Guðni Gíslason   
Mánudagur, 27. febrúar 2012 23:16

Alda Ingibergsdóttir var kjörinn nýr formaður stjórnar Óperukórs Hafnarfjarðar á líflegum aðalfundi kórsins í kvöld. Tekur hún við af Sigrúnu Ósk Ingadóttir sem gegnt hefur starfinu af röggsemi undanfarin ár og voru henni þökkuð góð störf fyrir kórinn. Aðrir í stjórn voru kjörnir: Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir varaformaður, Margrét Milla Sigurjónsdóttir ritari, Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir gjaldkeri, Margrét Valgerður Pálsdóttir skjalavörður og Ingunn Jensdóttir meðstjórnandi.

Þakkaði Sigrún Ósk í skýrslu stjórnar öllum þeim sem á óeigingjarnan hátt hafa starfað fyrir kórinn og stutt og sagði frá starfi kórsins á síðasta ári. Var nýkjörnum formanni óskað velfarnaðar og var góður hugur í fólki og fjölmargir kosnir í nefndir.

Stjórn 2012-2013

F.v. Margrét Milla, Ingunn, Alda, Kristjana og Guðbjörg. Á myndina vantar Margréti Valgerði.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 28. febrúar 2012 00:05
 
Áhugasamir söngfuglar Senda í tölvupóst

Söngfélagar óskast

Óperukór Hafnarfjarðar er metnaðarfullur kór með glaðlegu söngfólki. 

Kórnum hefur verið boðið að syngja í Verona á Ítalíu í júlí 2012 
og er undirbúningur þegar hafinn.

Nánari upplýsingar gefur kórstjóri, Elín Ósk Óskarsdóttir
sími 862 4868, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. janúar 2012 00:18